1227 Original borðlampinn kom fyrst á markað 1934 og er talinn vera helsta auðkenni Anglepoise, með brautryðjandi gormatækni sem skilar fullkomnum sveiganleika og jafnvægi. Í dag er hann talinn vera tímalaus og klassísk hönnun.
- Efnisviður: Ál (fótur og skermur) - steypt járn með krómhúðun (standur)
- Litur: Króm
- Stærð: Max hæð: 60 cm - Skermur: ø14,5 x h15 cm - Standur: 15 x 15 cm
- Lengd snúru: 200 cm
- Ljósapera: 15W max
Hannaður af hönnuðinum George Carwardine.